Almennir skilmálar

Hér eftir er Seljandi, Hirzlan, Síðumúla 37, 108 Reykjavík, kennitala: 530513-1810, virðisaukaskattsnúmer 124495. Hirzlan ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.

Pöntun er bindandi eftir að búið er að panta vöru í lokaskrefi í vefverslun. Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslunnar. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð eru stöðugt að breytast hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega í lokaskrefi í vefverslun. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru vörur fráteknar á lager þar til greiðsla berst. Vörur eru fráteknar í 1 dag með tilliti til frídaga, ef millifærsla berst ekki innan þess tíma er pöntun aflýst.

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavini. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Ef afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma. Ef að afhending reynist árangurslaus í annað skiptið er vara tekin í geymslu þar til hún er sótt. Geymslutími miðast við 2 vikur og eftir það áskilur seljandi sér rétt til að rifta kaupum. Ef aðstæður krefjast þess að varan sé geymd er krafist mánaðarlegs geymslugjalds sem nemur um 5% af upphæð vörunnar.

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Mælt er með að tilkynning vegna mögulegs galla berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan meðallíftíma umfram 2 ár. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Komi upp ágreiningur milli seljanda og kaupanda og náist ekki samkomulag skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur

Skilaréttur viðskiptavinar

  • Viðskiptavinur hefur heimild samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsgöngu og fjarsölusamninga að skila vöru innan 14 daga og fá endurgreitt án þess að tilgreina nokkra ástæðu að því gefnu að varan sé í upprunalegum umbúðum.
  • Viðskiptavinur hefur 30 daga til að skila vörunum okkar ef honum finnst hún ekki vera að virka. Þá tekur seljandi á móti vörunni án frekari vandkvæða og endurgreiðir hana að fullu. Miðað er við kaupdag á nótu.
  • Ef vara reynist ekki vera til eftir kaup, þá fær viðskiptavinur að fullu endurgreitt
  • Ef varan reynist gölluð þá kappkostar seljandi við að laga eða skipta út vörunni eða veitir afslátt. Annars tekur söluaðili við vörunni aftur og endurgreiðir hana.

Afhending vöru

  • Vara sem er verslað er með á vefsíðu er tilbúin til afheningar í verslun næsta virka dag eftir kaup.
  • Heimsending innan höfuðborgarsvæðisins kostar 8.000kr,-
  • Bílstjóri hefur samband við viðskiptavin næsta virka dag eftir kaup varðandi afhendingar tíma.
  • Heimsending utan höfuðborgarsvæðisins er á kostnað kaupanda og fer eftir gjaldskrá flutningsaðila.

Öryggisskilmálar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.